Sýnishorn-verkefni

Töskur og pokar
Hér eru nokkur sýnishorn af ýmsum gerðum af töskum eða pokum sem nemendur hafa saumað og pressað á. Nemendur gerðu m.a. íþróttapoka með böndum, hliðartöskur og litlar töskur fyrir símtæki og lesbretti.

Flettu til að skoða myndirnar og fá hugmyndir!

Koddaver og púðar
Nemendur gerðu alls kyns mismunandi púða bæði að stærð og gerð. Koddaverin voru öll í stöðluðu stærðinni 50X70cm.


Merkingar á fatnað

Nemendur geta komið með fatnað og hannað myndir, texta, logo eða annað sem þeir vilja nota til að pressa á. Oft má gefa flíkum nýtt líf með því að breyta aðeins til og lífga upp á.