Smiðjan

Kennslufyrirkomulag

Nemendur koma í textílmennt í 4 kennslustundir á viku í lotum sem vara u.þ.b. 6 vikur. Í smiðujulotunni hjá 7. bekk er miðað við að allir nemendur vinni a.m.k. eitt saumaverkefni og merki afurðina með fatafilmu. Nemendur læra að nota Cricut vélina og geta útbúið filmur á veggi, gólf og ýmsa hluti eða merkt afurðir eða flíkur sem þeir koma með að heiman og vilja gefa nýtt líf.

Mikilvægt er að nemendur séu sem sjálfstæðastir í sinnu vinnu þannig að tími þeirra og kennarans nýtist sem best. Hér á vefnum eru myndbönd sem þeir geta nálgast bæði í tengslum við Cricut vélina og saumavélina.

Hæfniviðmið

  • Útskýrir og sýnir vinnuferli sem felur í sér þróun frá hugmynd til afurðar

  • Tekur tillit til annarra í hópvinnu og sýnir frumkvæði

  • Beitir grunnaðferðum og áhöldum í völdum viðfangsefnum

  • Gerir sér grein fyrir helstu hugtökum sem tengjast greininni

  • Sýnir ábyrga og örugga umgengni við vinnu og frágang


hugmyndir að saumaverkefnum

  • Koddaver 50X70 cm

  • Púði

  • Íþróttapoki/poki fyrir síma/ ear pods

  • Snyrtibudda

  • Pennaveski



Endurhönnun

Nemendur geta komið með að heiman:

  • Boli

  • buxur

  • hettupeysur

  • poka

  • Annað sem þeim detttur í hug

Nemendur geta auk þess unnið með vegg/gólf filmur og sett á ýmsa staði eða hluti. Hinn almenni kennari getur líka stutt við nemendur við að hanna ýmsar merkingar, orð eða mælieiningar sem má svo nýta í fjölbreyttri kennslu, t.d. merkja umhverfi með orðum á íslensku og öðrum tungumálum, í ýmiskonar nýsköpunarvinnu o.fl. Með þessu móti eru verkgreinar og sköpun í auknu mæli samþættar öðrum greinum.